Guðmundur og Hannes

Hannes Hlífar Stefánsson (2511) og Guðmundur Kjartansson (2434) sitja þessa dagana að tafli á alþjóðlegu móti í Pétursborg í Rússlandi. Teflt er til minningar um Viktor Korchnoi. Eftir þrjár umferðir hafa þeir báðir 2,5 vinninga.

Í gær gerði Guðmundur jafntefli við rússneska stórmeistarann Dmitry Kokarev (2608).

Fjórða umferð fer fram í dag. Þá teflir Gummi við georíska stórmeistarann Mikheil Mchedilishvili (2608) en Hannes við Rússann Denies Pershin (2404). Umferðir hefjast kl. 14.

 

- Auglýsing -