Rétt eins og um allt land hófust grunnskólar Reykjavíkur í síðustu viku. Eins og síðustu árin er skákkennsla hluti af námi stórs hóps reykvískra nemenda. Mismunandi er eftir skólum á hvaða skólastigi skákin er kennd en flestir nemendur eru í skák á yngsta stigi, þ.e. 1. – 4. bekk. Á því aldursstigi er skákkennslan hluti af reglubundni stundatöflu nemenda á skólatíma. Á eldri aldursstigum er skák yfirleitt kennd sem valfag. Stefán Bergsson framkvæmdastjóri Skákakademíu Reykjavíkur gerir hér að neðan grein fyrir því í hvaða skólum borgarinnar skák er kennd og hverjir kenna.
Björn Ívar Karlsson er sem fyrr algert akkeri í kennslunni. Björn kennir á þessum vetri í sjö grunnskólum; Rimaskóla, Hlíðaskóla, Austurbæjarskóla, Ölduselsskóla, Foldaskóla, Breiðagerðisskóla og Háaleitisskóla. Nýjasti stórmeistari Íslendinga Bragi Þorfinnsson kennir í þremur skólum; Kelduskóla, Langholtsskóla og Melaskóla. Skákkennsla í Melaskóla verður mun meiri en síðustu ár sem eru mikil gleðitíðindi enda skólinn mikill skákskóli í sögulegu tilliti.
Gunnar Finnsson hefur verið einn ötulasti skákkennari landsins síðustu árin og náð góðum árangri. Gunnar heldur sínu striki í Ingunnarskóla og Árbæjarskóla. Skáksveitir Landakotsskóla hafa vakið athygli síðustu árin fyrir vasklega framgöngu á mótum og meðal annars mætt til leiks í búningum merktum skólanum. Í Landakotsskóla sjá þeir Micah Quinn og Hrafnkell Már Einarsson starfsmenn skólans um skákstarfið.
Laugalækjarskóli hefur um árabil verið einn helsti skákskóli landsins og fjölmargir nemendur skólans skrá sig í skákval á hverjum vetri. Í ár sér Stefán Bergsson um kennsluna. Kristófer Gautason sem kenndi skák í nokkrum skólum í fyrra og við góðan orðstír mun minnka við sig á þessu ári sökum háskólanáms en mun þó áfram koma að skákkennslu í Ísaksskóla.
Bjarni Jóhannsson íþróttakennari við Dalskóla tók þátt í verkefninu Skák eflir skóla-kennari verður skákkennari fyrir tveimur árum. Bjarni sem lærði að tefla í Rimaskóla á sínum tíma heldur uppteknum hætti og mun kenna yngstu nemendum skólans skák á þessum vetri. Sigurjóna Björgvinsdóttir kennari við Breiðholtsskóla hefur lengi kennt skák við skólann og kennir skák á þessum vetri m.a. sem valfag í unglingadeild. Í Réttarholtsskóla er stefnt á skákkennslu í unglingadeild en Páll Þórsson skákmaður er kennari við skólann. Einar Ólafsson fyrrum skólastjóri hefur kennt skák síðustu árin í Norðlingaskóla og heldur því áfram í vetur. Lenka Ptacniková hefur síðustu árin kennt við Háteigsskóla og stefnir að því á komandi vetri en það liggur þó ekki alveg fyrir.
Sé fjöldi skóla tekinn saman má sjá að skák er kennd yfir veturinn á reglubundinn hátt í um 20 skólum sem er um það bil helmingur skóla borgarinnar. Þegar líður á veturinn gætu fleiri skólar bæst í hópinn t.d. með námskeiðum yfir styttri tímabil.
Skákkennsla á Akureyri skólaárið 2018-19
Haustið 2018 verður nemendum fimm grunnskóla á Akureyri boðið upp á skákkennslu. Þessir skólar eru:
Brekkuskóli 3. og 4. bekkur, 5. bekkur síðar í haust.
Glerárskóli 3. og 4. bekkur saman.
Lundarskóli 3. og 5. bekkur, 4. og 6. bekkur síðar í haust.
Naustaskóli 3-5. bekkur.
Síðuskóli 3. og 4. bekkur.
Áskell Örn Kárason sé um kennsluna í þessum skólum og er fyrirkomulagið með þessum hætti:
Skáktímar eru á ákveðnum tíma í stundatöflu. Í öllum skólunum í 3. og 4. bekk, í þremur skólum í 5. bekk og einum í 6. bekk.
Fjöldi barna í árgangi í þessum skólum er oftast á bilinu 40-60. Nemendum verður kennt í 10-16 barna hópum og fá allir a.m.k. fjórar kennslustundir í skák á haustmisseri. Eftir það verður þeim nemendum sem þess óska boðið upp á áframhaldandi skákkennslu og er stefnt að því að það fyrirkomulag gildi út skólaárið. Í nokkrum skólum er þetta beinlínis sett upp þannig að þegar um stöðvakennslu er að ræða (nemendur flytja sig í minni hópum milli stöðva þar sem ákveðin viðfangsefni eru tekin fyrir), verður skák í einni stöðinni.
Þá er nemendum unglingadeilda (8-10. bekkur) boðið upp á skák sem valgrein. 15 nemendur eru skráðir í skákval á þessu skólaári (líklegt að einhverjir eigi eftir að bætast við þegar þetta er skrifað í ágústlok) og verður þeim kennt í einum hópi, í Skákheimilinu, tvær samliggjandi kennslustundir einu sinni í viku. Áskell sér einnig um þessa kennslu.












