Næsta viðureign „Team Iceland“ verður gegn meistaraliði Úkraínu. Gera má ráð fyrir að þeir mæti með nokkuð sterkt og fjölmennt lið og eru þeir nú þegar farnir að safna í lið enda um að ræða fyrstu viðureign Úkraínu eftir að þeir unnu meistaratitilinn í ágúst. Þeir ætla sér ekkert annað en sigur og er því um að ræða afar skemmtilega og spennandi viðureign.
Viðureignin er liður í undirbúningi Team Iceland fyrir Heimsdeildina í netskák (LCWL) sem hefst í október.
Allir geta tekið þátt!
Athygli er vakin á því að allir sem vilja geta tekið þátt! Mótin eru opin öllum og ekki er gerð krafa um lágmarks styrkleika. Allir eru því hvattir til að ganga í „Team Iceland“ og taka þátt í þessum skemmtilegu viðureignum í haust og vetur.
Keppendur þurfa að ganga í hópinn https://www.chess.com/club/team-iceland á Chess.com áður en keppnin hefst. Tenglar á viðureignina eru birtir hér að neðan, en þá má einnig finna í “Tournaments” flipanum á Chess.com áður en keppnin hefst.
Tvær viðureignir og aukamót
Um er að ræða tvær viðureignir gegn Úkraínu. Fyrst verður tefld leifturskák (bullet) og hefst sú viðureign kl. 18:00. Tefldar eru tvær skákir, en hvert borð mætir samsvarandi borði andstæðinganna með skiptum litum. Að því loknu verður tefld hraðskák (5+2) og hún kl. 18:15 og er fyrirkomulagið hið sama, tvær skákir með skiptum litum.
Gæta þarf að því að skipta um mót á milli viðureigna, en það er gert í tournaments flipanum á Chess.com.
Til viðbótar fer fram aukamót (Aukamót (lett mot)) og hefst það kl. 18:50, en þá er hinni formlegu keppni gegn Úkraínu lokið. Mótið er svokallað „Arena“ mót og verður notast við tímamörkin 3+2. Mótið stendur yfir í klukkutíma. Arena mót býður upp á þann valkost að mæta til leiks eftir að mótið hefst og jafnvel tefla bara nokkrar skákir og hætta kjósi menn það.
Dagskráin
- Sunnudaginn 2. September kl. 18:00 – Bullet keppni (Ísland – Úkraína) 1/1 (https://www.chess.com/live#tm=1602)
- Sunnudaginn 2. September kl. 18:15 – Hraðskák (Ísland – Úkraína) 5/2 (https://www.chess.com/live#tm=1604)
- Sunnudaginn 2. september kl. 18:50 – Aukamót (lett mot) 3/2 – fyrir þá sem vilja tefla meira (Íslendingar) (https://www.chess.com/live#r=59563)














