Skáksamband Íslands hélt afar vel heppnað málþing um málefni skákhreyfingarinnar í gær í Rimaskóla. Á fjórða tug þátttakanda mætti. Sex málefni voru rædd. Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra, mætti eftir hádegishlé og lýsti yfir miklum áhuga ráðuneytisins að taka þátt í skákátaki í skólum landsins með skákhreyfingunni. Annar alþingismaður, Karl Gauti Hjaltason, mætti einnig og talaði fyrir mikilvægi þess að auka vægi skákkennslu í menntastefnu landsins.

Að morgni til var farið yfir annars vegar landsliðs- og afreksmál og hins vegar útbreiðslustarf. Margir áhugaverðar punktar komu úr þeirri vinnu. Eftir hádegi var annars vegar farið yfir barna- og unglingastarf og hins vegar kvennaskák. Ekki komu síður áhugaverðir punktar þar upp. Í framhaldinu voru tekin fyrir málefni skákmanna 50+ og 65+. Sem fyrr komu áhugaverð sjónarmið fram sem verða gott veganesti.
Að lokum var rætt um framtíðarfyrirkomulag Íslandsmóts skákfélaga hvað varðar efstu deild. Á þann fund mættu átta forystumenn úr sjö taflfélögum og fulltrúar allra liða úr efstu deild nema tveggja. Þótt að menn hafi ekki komist að hreinni niðurstöðu, kom það í ljós að flestir voru á svipaðri línu um framtíðarfyrirkomlag keppninnar þótt áherslumunur væri. Það var samdóma álit fundargesta að fundurinn hafi verið góður og málefnalegur og menn mun nær því að tala sig inná niðurstöðu en hingað til.

Á næstunni verða þau gögn sem unnin voru gerð opinber. Stjórn Skáksamband Íslands mun taka gögnin til umfjöllunar. Einhverjar hugmyndir sem komu fram munu að öllum líkindum koma til framkvæmdar strax á þessu starfsári jafnframt því að vinnan mun skila sér til stefnumörkunar fyrir komandi ár í hinum ýmsu málaflokkum.
Helgi Árnason fær þakkir fyrir lán á hátíðarsal skólans. Hrönn Pétursdóttir fær frábærar miklar þakkir fyrir hennar aðstoð við málþingið.
Stjórn SÍ þakkar öllum sem mættu fyrir ánægjulegan og árangursríkan dag.















