Í gær (sunnudag) fór fram önnur af fjórum vináttukeppnum sem „Team Iceland“ þarf að ljúka áður en keppni hefst í Heimsdeildinni í netskák.
Andstæðingar dagsins voru ekki af verri endanum enda var um að ræða meistara síðasta tímabils, Úkraínumenn.
Úkraínumenn eiga afar sterkt og fjölmennt netskáklið og eru ekki mikið fyrir að tapa gegn smærri liðum. Þeirra helsti styrkleiki er fjölmennið, en þeir geta mannað mjög stórar sveitir og eru oftast stigahærri en andstæðingarnir á neðri borðunum.
Viðureigninni var skipt í tvo hluta. Fyrst var tefld svokölluð leifturskák (bullet 1+1) og því næst tók við hraðskák (5+2). Í báðum tilfellum voru tefldar tvær skákir með skiptum litum.
Leifturskákin
Teflt var á 21 borði í leifturskákinni og var viðureignin afar jöfn og spennandi. Lið Íslands var afar vel skipað og rétt aðeins stigahærra en lið andstæðinganna, en lið Íslands var með meðalstig upp á 1936 gegn 1889 meðalstigum Úkraínumanna. Meistaralið Úkraínu (í bullet og hraðskák!) lét stigahallann ekki á sig fá og marði sigur með minnsta mun. Ísland 20 – 22 Úkraína!
- Leifturskákin (Bullet): https://www.chess.com/club/matches/live/team-iceland/1602/games
Hraðskákin
Teflt var á 20 borðum í hraðskákinni. Lið Úkraínumanna var talsvert stigahærra heldur en í leifturskákinni og voru þeir með meðalstig upp á 2121! gegn 2058 meðalstigum Íslendinga. Munar þar miklu um að stigalægsti keppandi Úkraínumanna var með 1851 stig á móti 1408 stigum okkar manna. Kemur þar til sögu hin margumrædda breidd sem Úkraínumenn búa yfir í svona keppni.
Lið Úkraínumanna tók fljótlega öll völd og náði góðu forskoti um miðbik viðureignarinnar. Okkar menn börðust af mikilli hörku og nálguðust vinningafjölda meistaranna en forskotið reyndist of mikið að þessu sinni. Meistaralið Úkraínu sigraði því, hlaut 22 vinninga gegn 18 vinningum Íslands.
Næsta viðureign – Allir geta verið með!
Næst mætum við liði Argentínu, sunnudaginn 9. september kl. 20:00.
Þeir enduðu í 7. sæti í 1. deild á tímabilinu sem lauk í ágúst. Þeir hafa verið að tefla á 20-30 borðum og ættu því flestir að fá andstæðing í þessari viðureign.
Allir eru hvattir til að ganga í “Team Iceland” og mæta til leiks!

HVAÐ ÞARF AÐ GERA TIL AÐ TAKA ÞÁTT?
Keppendur þurfa að ganga í hópinn https://www.chess.com/club/team-iceland á Chess.com áður en keppnin hefst. Tengill á mótið verður birtur fyrir mót en hann má einnig finna í “Tournaments” flipanum á Chess.com áður en keppnin hefst.

Allir eru hvattir til að ganga í liðið, en ekki er gerð krafa um styrkleika. Því fleiri – því betra!
DAGSKRÁIN. ATH NÝJAR TÍMASETNINGAR!
- Sunnudaginn 9. September kl. 20:00 – Bullet keppni (Ísland – Argentína) 1/1 (https://www.chess.com/live#tm=1621)
- Sunnudaginn 9. September kl. 20:20 – Hraðskák (Ísland – Argentína) 5/2 (https://www.chess.com/live#tm=1622)
- Sunnudaginn 2. september kl. 21:00 – Aukamót (lett mot) 3/2 Arena – fyrir þá sem vilja tefla meira (Íslendingar) (https://www.chess.com/live#r=60406)
















