Sjöunda árið í röð sóttu ung og efnileg skákungmenni frá Skákdeild Fjölnis alþjóðlega skákmótið í Västerås í Svíþjóð. Þetta helgarskákmót mun vera það fjölmennasta sinnar tegundar á Norðurlöndum. Í ár voru þátttakendurnir 250.
Allt frá því að Nansý Davíðsdóttir sló í gegn, þá 10 ára gömul, og sigraði árið 2012 stigalægri flokkinn með glæsilegum hætti þá hafa Fjölniskrakkar verið aufúsugestir á Västerås. Nú gerðist það ótrúlega að okkar efnilegi 21. árs gamli skákmaður Dagur Ragnarsson (2241)gerði sér lítið fyrir og sigraði opna flokkinn ásamt stórmeistaranum Yuri Solodovnichenko (2554) en báðir hlutu þeir 7 vinninga af 8. Hreint frábær árangur hjá Degi að sigra sjö viðureignir. Það var einungis heimsmeistarinn fv og stórmeistarinn Pia Cramling sem lagði Dag á þessu öfluga skákmóti. Í opna flokknum tefldu auk Dags þau Oliver Aron, Hrund Hauksdóttir, Sigríður Björg og Jóhann Arnar Finnsson. Sá síðastnefndi tefldi mjög vel og hækkaði um rúmlega 20 stig og 53 atskákstig. Fjórar fyrri umferðir mótsins eru atskákir með 15 + 5 sek.

Í stigalægri flokknum 1600 mættu 9 ungmenni til leiks frá Fjölni, krakkar með 0 – 1500 stig. Þarna létu Íslendingarnir strax til sín taka. Eftir atskákirnar var Kristján Dagur Jónsson kominn með 3,5 vinninga og Joshua Davíðsson, Sæmundur Árnason og Arnór Gunnlaugsson með 3 vinninga, allir í topp 12 af 57 keppendum. Andstæðingarnir urðu erfiðari en þeir Joshua og Sæmundur létu það ekki á sig fá og reyndust ósigrandi í síðari hlutanum, fyrir utan að Joshua vann í innbyrðis viðureign. Joshua lenti í 2. sæti í stigalægri flokki, Sæmundur í því 3. og Kristján Dagur 6. – 11. sæti.
Ungmennin 13 hlutu samtals 55 vinninga gegn 49 sem töpuðust.
Fjölnisungmennin voru á aldrinum 12 – 26 ára og hafa teflt meira og minna fyrir skákdeildina allt frá stofnun árið 2004. Þetta er eins og í upphafi sagði 7. árið í röð sem Fjölnismenn fjölmenna á Västerås Open og alltaf hefur árangurinn verið góður og ferðirnar áhugaverðar og einstaklega vel heppnaðar. Frammistaða Dags Ragnarssonar nú í ár og Nansýjar fyrir 6 árum standa upp úr enda langt frá því að vera sjálfgefið að ná sigri á svo fjölmennum skákmótum. Dagur fær um 130.000 kr í peningaverðlaun en auk hans hlutu Jóhann Arnar, Joshua og Sæmundur peningaverðlaun fyrir silfur , brons og „ratings“.
Flogið var með WOW, gist á hinu glæsilega Stadtshóteli í miðju bæjarins og teflt við góðar aðstæður í Rudbeckianska gymnasiet. Fararstjórar voru þau Helgi Árnason formaður skákdeildar Fjölnis og Sigurbjörg Guðmundsdóttir. Helgi hefur átt gott samstarf við Andre Nilsen skákfrömuð í Västerås sem stjórnar mótinu og greiðir götu Fjölnismanna eins og best er á kosið.
Ævintýraferðirnar til Västerås hafa í gegnum árin verið krökkunum nánast ókeypis. Að venju styrkja Íslandsbanki og Sænsk-íslenski menningarsjóðurinn verkefnið, Skáksamband Íslands kostar þátttökugjald drengjanna tíu en Jafnréttissjóður veitir stúlknastarfi Fjölnis myndarlegan styrk í ár sem nýtist m.a. til þessarar ferðar.















