EM taflfélaga hófst í gær!

Evrópukeppni taflfélaga hófst í gær í Porto Carras í Grikklandi. Tvö íslensk taflfélög taka þátt. Annars vegar eru það Íslandsmeistarar Víkingaklúbbbins og hins vegar Taflfélag Reykjavíkur. TR sendir sterkt lið til leiks. Lið þeirra hefur meðalstigin 2419 skákstig og er hið 19. stigahæsta af 61 sveit. Lið Víkingaklúbbins er töluvert lakara. Meðalstigin eru 2178 skákstig og er liðið nr. 47 í styrkleikaröðinni. Mikill styrkleikamunur var í fyrstu umferð á milli sveita og úrslitin í samræmi við það.

Flestir sterkustu skákmenn heims tefla í Porto Carras með heimsmeistarann Magnus Carlsen (2839) fremstan í flokki.

TR vann öruggan 5½-½ í fyrstu umferð á klúbbnum De Sprenger Echternach frá Lúxemborg. Guðmundur Kjartansson (2428) gerði jafntefli við þýska stórmeistarann Chrisopher Noe (2530) en aðrar skákir unnust.

Víkingaklúbburinn tapaði með sama mun fyrir þýska klúbbnum DJK Aufwaerts Aachen. Björn Þorfinnsson (2414) gerði jafntefli á fyrsta borði við þýska stórmeistarann Alexander Donchenko (2610) en aðrar skákir töpuðust.

Hvorug tveggja eðlileg úrslit miðað við styrkleikamuninn á milli sveita. Önnur umferð fer fram í dag og hefst kl. 12:15.

Þá teflir TR við svissneska klúbbinn Schachgesellschaft Zurich sem er áþekkur TR að styrleika.

Víkingaklúbbinn mætir Dardania frá Kósóvó sem er eilítið lakari en Víkingklúbburinn að styrkleika.

Magnus Carlsen teflir í dag fyrir norska klúbbinn Valerenga Sjakkklubb en hann hvíldi í gær. Andstæðingurinn hans verður Vladimir Potkin (2597).

Heyrst hefur að EM-fararnir ætli að vera með reglulegt hlaðvarp frá skákstað. Skákhlaðvarpið sló í gegn á meðan ólympíuskákmótið var í gangi. Skákáhugamenn bíða spenntir.

- Auglýsing -