Frá EM taflfélaga: Mynd: Heimasíða mótsins

Taflfélag Reykjavíkur vann góðan 3½-2½ á svissnesku sveitinni Schachgesellschaft Zurich í gær. Bragi Þorfinnsson og Margeir Pétursson unnu sínar skákir. Guðmundur Kjartasson gerði gott jafntefli á efsta borði.

Sveitin hefur fullt hús eftir tvær umferðir og mætir í dag asersku ofursveitinni Odlar Yurdu sem hefur á að skipa aserka landsliðinu meira eða vinna. Reyndar vantar Radjabov. Aserarnir tefla djarft og hvíla Mamedyarov gegn TR!

Víkingaklúbburinn tapaði 2½-3½ fyrir kóvóvískri sveit. Björn Þorfinnsson og Gunnar Freyr Rúnarsson unnu sínar skákir. Víkingar mæta í dag ískri sveit sem er mun lakari.

Evrópukeppni taflfélaga fer fram í Porto Carras í Grikklandi. Tvö íslensk taflfélög taka þátt. Annars vegar eru það Íslandsmeistarar Víkingaklúbbbins og hins vegar Taflfélag Reykjavíkur. TR sendir sterkt lið til leiks. Lið þeirra hefur meðalstigin 2419 skákstig og er hið 19. stigahæsta af 61 sveit. Lið Víkingaklúbbins er töluvert lakara. Meðalstigin eru 2178 skákstig og er liðið nr. 47 í styrkleikaröðinni.

Magnús teflir á EM taflfélaga í fyrsta skipti í 10 ár. Mynd: Heimasíða mótsins.

Magnus Carlsen hóf í gær taflmennsku fyrir norska klúbbinn Valerenga Sjakkklubb. Hann vann Vladimir Potkin (2597) í fyrstu umferð.

Enn bíða skákáhugamenn spenntir eftir að reglulegt skákhlaðvarp hefjist frá Porto Carras.

- Auglýsing -