Hilmir Freyr Heimsson (2271) hefur hálf vinnings forskot fyrir lokadag alþjóðlega mótsins í Uppsölum í Svíaveldi en í dag fara fram áttunda og níunda umferð. Hilmir, sem hefur 5½ vinning, gerði í gær jafntefli við Svíann Kaan Kucuksari (2327). Joakim Nilsson (2191) er annar með 5 vinninga.
Í áttundu og næstsíðutu umferð, sem hefst núna kl. 8, teflir Hilmir við Isak Storme (2276).
Símon Þórhallsson (2092) hefur 3½ vinning eftir tap gegn Leo Creatin (2160) í gær.
Lokaumferðin hefst kl. 14 í dag.
- Auglýsing -















