Tímaritið Skák er nýkomið út og verður sent til þeirra sem greiddu áskriftargjald SÍ fyrir starfsárið 2017-18 á næstu dögum. Blaðið ætti að berast glóðvolgt inn um póstlúguna í næstu viku. Tímaritið telur tæplega 100 blaðsíður að þessu sinni og er stútfullt af fjölbreyttu efni. Ljóst er að mikið hefur verið lagt í blaðið og kann Skáksamband Íslands Mátum bestu þakkir fyrir vandaða vinnu.

Forsíða Tímaritsins Skákar. Mynd á forsíðu: Lennart Ootes

Meðal efnis má nefna:

Arngrímur Þór Gunnhallsson skrifar um Stefán Kristjánsson.

Bragi Þorfinnsson fer yfir vegferð sína að stórmeistaratitlinum.

Friðrik Ólafsson helgar endataflsstúdíu minningu Guðmundar Arnlaugssonar.

Gunnar Björnsson, Ingvar Þór Jóhannesson og Björn Ívar Karlsson segja frá Ólympíuskákmótinu í Batumi og nýafstöðnum forsetakosningum FIDE.

Halldór Grétar Einarsson segir frá Íslandsmeistaratitli háskólakennarans Helga Áss Grétarssonar.

Ingvar Þór Jóhannesson segir frá GAMMA Reykjavíkurskákmótinu.

Pálmi Ragnar Pétursson talar um skákina á tímum skúrkanna.

Stefán Bergsson skrifar um skákæskuna.

Einar S. Einarsson segir frá Skáksögufélaginu.

og margt fleira áhugavert!

Efnisyfirlitið í heild sinni má finna hér að neðan.

Þeir sem vilja skrá sig fyrir blaðinu geta gert það hér.

Blaðið kostar 5.000 krónur og er hægt að fá sent í pósti.

- Auglýsing -