Kramnik og Nepo. Mynd: Alina l'Ami/Tata Steel Chess

Ian Nepomniachtchi (2763) er efstur á Tata Steel-mótinu í Sjávarvík eftir sigur á Vladimir Kramnik (2777) í þriðju umferð í gær. Nepo hefur 2½ vinning. Ding Liren (2813) og Vishy Anand (2773) koma næstir með 2 vinninga. Magnús Carlsen (2835) gerði sitt tuttugusta jafntefli í röð (!!) þegar hann gerði jafntefli við Sanotsh Vidit (2695).

Fjórða umferð fer fram í dag. Þá teflir Carlsen við Kramnik sem er neðstur á mótinu með hálfan vinning. Nepo mætir Mamedyarov (2817).

- Auglýsing -