Í Svávarvík fer fram mikil skákveisla. Mynd: Alina l'Ami/Tata Steel Chess

Heimsmeistarinn, Magnús Carlsen (2835), er heldur betur kominn í gang. Í gær vann sinn þriðja sigur í fjórum skákum – virðist vera laus úr jafnteflisálögunum.  Sá norski lagði Richard Rapport (2731) að velli í áttundu umferð Tata Steel-mótsins í Sjávarvík í Hollandi með afar hniðmiðari taflmennsku á glæsilegan hátt.

„Gamli maðurinn“, Vishy Anand (2773), teflir eins og unglingur og vann Mamedyarov (2817) í góðri skák.

Frídagur er í dag. Á morgun teflir Carlsen við Sam Shankland en Anand við Rapport.

Nánar á Chess.com

- Auglýsing -