Helgi Áss og Gummi Kja eru báðir meðal keppenda á alþjóðlega mótinu í Lviv.

Íslenskt mótahald dregst mikið saman á sumrin. Þá halda íslenskir skákmenn hins vegar í víking!

Á morgun hefst Norðurlandamótið í skák í Sarpsborg í Noregi. Tveir íslenskir fulltrúar taka þátt. Íslandsmeistarinn frá í fyrra, Helgi Áss Grétarsson og margfaldur Íslandsmeistari kvenna, Lenka Ptácníková.

HSG-mótið hefst í Hollandi á morgun. Þrír íslenskir fulltrúar taka þátt. Gauti Páll Jónsson, Héðinn Briem og Elvar Örn Hjaltason.

Gauti Páll teflir reyndar meira en allir aðrir í sumar, þar með talið atvinnumennirnir okkar, því hann tekur þátt í fjórum alþjóðlegum mótum í sumar. Hann teflir í Paracin í Serbíu í júlí ásamt Vigni Vatnari Stefánssyni og Arnari Milutin Heiðarssyni og RTU Open í Riga í ágúst ásamt Guðmundi Kjartanssyni og Stefán Bergssyni.

Íslandsmeistarinn þrettánfaldi, Hannes Hlífar Stefánsson, er skráður til leiks í tvö alþjóðleg mót. Annars var alþjóðlegt mót í Tékklandi í júní/júlí og hins vegar í Leiden í Þýskalandi í júlí.

Jóhann Hjartarson teflir á Xtracon-mótinu í Helsingör í júlí nk.

Fjórtán íslenskir fulltrúar taka þátt í EM ungmenna sem fram fer í Bratislava í ágúst nk.

Yfirlit yfir mót erlendis á næstunni sem Íslendingar taka þátt í

Allar upplýsingar um mót erlendis sem Íslendingar taka þátt í sumar má senda til ritstjóra.

- Auglýsing -