Norðurlandamót skákfélaga hófst í gær á Chess.com. Þátttaka er framúrskarandi góð en alls tefla 606 skákmenn í mótinu frá 67 skákfélögum og þar af eru 27 stórmeistarar. Alls taka þátt 16 íslensk lið og sitja 138 Íslendingar að tafli um helgina.
Í hverju einvígi er tefld tvöföld umferð. Það eru 4 stig í boði í öllum einvígunum en báðar umferðirnar eru sjálfstæðar.
Úrslit í gær urðu eftir bókinni frægu. Það er sterkari liðin unnu flesta báðar umferðirnar og hafa 4 stig. Skákgengið náði þó jafntefli í annarri umferðinni gegn mun sterkari liði.
Í dag eru tefldar tvær tvöföldar umferðir. SSON, sem hefur á að skipa sterkasta liði mótsins mætir sveit Taflfélags Garðabæjar í dag. Taflfélag Reykjavíkur mætir sveit Breiðabliks, Bolungarvíkur og Reykjaness.
Fyrri umferð dagsins hefst kl. 11 og sú síðari kl. 14.
Skáksamband Íslands stendur fyrir mótshaldinu í samvinnu við hin norrænu skáksamböndin og Chess.com.
- Liðin á Chess-Results
- Hægt er að fylgjast með einstaka viðureignum hér.
- Heimasíða mótsins
- íslenskir skákmenn á Facebook
















