Síðustu skákinni í Íslandsmótinu í netkappskák var að ljúka. Ísfirðingurinn öflugi og jákvæði er fyrsti Íslandsmeistarinn í þessari tegund skákar. Hann kórónaði þar með góða helgi, en Gummi fékk 13 af 14 í Norðurlandamóti skákfélaga í netskák.
Gummi og Vignir Vatnar tefldu úrslitaskák í lokaumferðinni.
Hvítt: Vignir Vatnar Stefánsson Breiðablik,Bolungarvík&Reykjanes 2296
Svart: Guðmundur Stefán Gíslason Breiðablik,Bolungarvík&Reykjanes 2308
London kerfið
1. d4 Rf6 2. Rc3 d5 3. Bf4
London kerfið er mjög vinsælt hjá ungum skákmönnum í dag.
3. – g6 4. e3 Bg7 5. h4 h6
Heyrði einhver staðar sagt að h6 væri oft besta svarið við h4 framrásum. Held að oft sé það satt.
6. Rf3 c6 7. Re5 Rbd7 8. Be2 0-0 9. h5 g5 10. Bg3

10. – Re4!? 11. Rxe4 dxe4 12. Bc4 Rxe5 13. dxe5 Da5+ 14. Dd2 Dxd2+ 15. Kxd2
Eins og sýnir sig í framhaldinu þá fær svartur betri stöðu eftir þessi uppskipti því biskupar hans standa betur og hann vinnur strax nokkur tempó á drottningarvæng vegna óheppilegrar stöðu hvítu mannanna.
15. – Hd8+ 16. Ke2 b5

17. Bb3 a5 18. a4 Ba6 19. Ke1 b4 20. Hd1 e6 21. f4 exf3 22. gxf3 c5 23. Kf2 c4 24. Ba2 Bf8

Gummi teflir skákina listavel og saumar smátt og smátt að Vigni ásamt því að halda virkni heraflans í hámarki. Svartreita biskup hvíts er ekki mikill maður og sá hvítreita er líka í vandræðum með að koma sér í almennilega stöðu.
25. Bb1 c3
Þú sleppur ekkert út !
26. bxc3 bxc3 27. Ba2 Hab8 28. f4 Ba3 29. f5

Hvítur er loksins kominn með smá mótspil, en það er bara of seint.
29. – Hxd1 30. Hxd1 Hb2 31. Bb1
Ef 31.Bb3 þá Hxb3 32.cxb3 c2 og vinnur.
31. – exf5 32. e6 fxe6 33. Be5 Bb4
Og hvítur gafst upp. T.d. 34.Hd8+ Kf7 35.Ha8 Bc4 og biskupinn á b1 er ekkert að fara í burtu.
0-1
Úrslitaskákin á Chess.com: https://www.chess.com/live/game/4716715635
Lokastaða efstu manna:
| Vinningar | Oddatsig | .+/- | ||||
| 1 | FM | Gislason Gudmundur | 2308 | 6 | 29 | 3,8 |
| 2 | Andrason Pall Snaedal | 1897 | 5,5 | 29 | 29,2 | |
| 3 | FM | Stefansson Vignir Vatnar | 2296 | 5,5 | 28,5 | -4,3 |
| 4 | WGM | Ptacnikova Lenka | 2111 | 5,5 | 26,5 | -1,4 |
| 5 | Runarsson Gunnar | 1946 | 5 | 28,5 | 19,2 | |
| 6 | Thorisson Benedikt | 1630 | 5 | 24,5 | 6 | |
| 7 | Sharifa Rayan | 1282 | 5 | 22 | 28,4 | |
| 8 | Kristinsson Ogmundur | 1965 | 4,5 | 29,5 | 2,4 | |
| 9 | Heidarsson Mikael Bjarki | 1185 | 4,5 | 24 | 33,6 |
Nánar á ChessResults
Íslandsmeistari kvenna
Lenka Ptacnikova Huginn
Unglingameistari íslands
Vignir Vatnar Stefánsson Breiðablik,Bolungarvík&Reykjanes
Íslandsmeistari 65+
Ögmundur Kristinsson Taflfélagi Reykjavíkur
Íslandsmeistari 50+
Guðmundur Stefán Gíslason Breiðablik,Bolungarvík&Reykjanes
Íslandsmeistari áhugamanna (undir 2000 eló)
Páll Snædal Andrason Taflfélagi Vestmannaeyja
Íslandsmeistari nýliða (undir 1600 eló)
Hjálmar Sigvaldason Vinaskákfélaginu
Íslandsmeistari U14
Benedikt Þórisson Taflfélagi Reykjavíkur
Íslandsmeistari U14 stúlkur
Arna Dögg Kristinsdóttir Skákfélagi Akureyrar
Íslandsmeistari U12
Mikael Bjarki Heiðarsson Breiðablik,Bolungarvík&Reykjanes
Íslandsmeistari U12 stúlkur
Guðrún Fanney Briem Breiðablik,Bolungarvík&Reykjanes
Íslandsmeistari U10
Arnar Freyr Orrason Breiðablik,Bolungarvík&Reykjanes
Íslandsmeistari U8
Birkir Hallmundarson Breiðablik,Bolungarvík&Reykjanes
Eftir hverja umferð eru allar skákir sendar til skönnunar hjá prófessor Kenneth Regan sem er sérfræðingur FIDE í að meta skákir út frá því hvort skákmaðurinn hefur sjálfur verið að tefla eða fengið utanaðkomandi aðstoð. Niðurstöður fyrir fyrstu sex umferðina eru komnar og eru þær að allt hafi farið vel fram.
Heimasíða mótsins og skákir mótsins

















