Norðurlandamóti skákfélaga á netinu lauk í dag. Skákfélag Selfoss og nágrennis (SSON) vann sigur á mótinu eftir góð úrslit gegn sænska félaginu Wasa SK í dag. Víkingaklúbburinn varð í öðru sæti eftir sigur á norska félaginu Oslo Schakselskap (OSS) í lokaumferðinni. Oss varð í þriðja sætinu.
Vert er að benda á frábæran árangur Skákfélags Akureyrar sem endaði í 3.-5. sæti (fjórða sæti á oddastigum).
Lokastaða efstu liða
Arnar E. Gunnarsson stóð sig afar vel í sinni fyrstu keppni fyrir SSON en hann hlaut 10 vinninga af 10 mögulegum. Andrey Epishenko hlaut 11 vinninga í 12 skákum. Auk þeirra skipuðu lið Norðurlandameistaranna þeir Anton Demschenko, Mikhal Antipov, Semyon Lomasov, Bragi Þorfinnsson, Dagur Arngrímsson, Artem Galaktionov og Róbert Lagermen. Oddgeir Ottesen var liðsstjóri.
Skáksamband Íslands stóð fyrir mótshaldinu í samvinnu við hin norrænu skáksamböndin og Chess.com.
Gunnar Björnsson var mótsstjóri, Omar Salama var skák- og pörunarstjóri en maður páskahelgarinnar var Tómas Veigar Sigurðarson sem hélt um flestöll tæknimál helgarinnar og leysti þau öll með gríðarlegum sóma!
Mótið komst ekki bara í íslenska sjónvarpið heldur líka í það finnska!
- Liðin á Chess-Results
- Hægt er að fylgjast með einstaka viðureignum hér.
- Heimasíða mótsins
- íslenskir skákmenn á Facebook
















