Arnar E. Gunnarsson sigraði á upphitunarmóti Íslandsmótsins í netskák - BRIM-mótsins. Mynd; Heimasíða TR.

Upphitunarmót Íslandsmótsins í netskák – BRIM-mótsins fór fram í gær á Chess.com. Alþjóðlegi meistarinn, Arnar E. Gunnarsson, sigraði á mótinu með fullu húsi. Annar varð stórmeistarinn Jóhann Hjartarson en hann hlaut 8 vinninga. Tapaði bara fyrir Arnari. Þriðji varð Halldór Ingi Kárason. Alls tóku 32 skákmenn þátt í mótinu.

Röð efstu manna:

  1. IM Arnar E. Gunnarsson 9 v.
  2. GM Jóhann Hjartarson 8 v.
  3. Halldór Ingi Kárason 6,5 v.
  4. FM Guðmundur Gíslason 6 v.
  5. Bragi Halldórsson 6 v.
  6. Ingvar Wu Skarphéðinsson 5,5 v.
  7. Heimir Ásgeirsson 5 v.
  8. IM Áskell Ön Kárason 5 v.
  9. WGM Lenka Ptácníková 5 v.
  10. Kristján Halldórsson 5 v.
  11. Halldór Pálsson 5 v.
  12. Björgin Ívarsson Schram 5 v.

Heildarstaðan og allar skákir mótsins

Íslandsmótið í netskák – BRIM-mótið hefst kl. 19:30 á morgun. Nú þegar eru um 80 manns skráðir í hóp Skáksambands Íslands sem er nauðsynlegt ætli menn að taka þátt í mótinu. Skráning í hópinn fer fram á forsíðu Skák.is.

Tengill mótsins á Chess.com.

- Auglýsing -