Hannes að tafli í Prag 2020. Mynd: Heimasíða mótsins.

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2542) gerði jafntefli við ungverska alþjóðlega meistarann Dominik Horvath (2446) í níundu og síðustu umferð alþjóðlega mótsins Budejovice í Tékklandi. Hannes endaði með 50% vinning, 4½ vinning í 9 skákum. Byrjaði illa en náði sér á strik og tapaði ekki skák í síðustu sex umferðunum.

Úrslit Hannesar

Frammistaða Hannesar samsvaraði 2492 skákstigum og lækkar hann um 8 stig fyrir hana.

- Auglýsing -