Gelfand kátur eftir sigurinn. Mynd: Chess24.

Skákgoðsagnir á Chess24 hóf göngu sína í gær. Magnús Carlsen vann sannfærandi sigur á Anish Giri. Óvænustu úrslitin voru hins vegar sigur Boris Gelfand á Ding Liren. Peter Svidler lagði Vishy Anand að velli. Tvö einvígi fóru í bráðabana. Þar unnu Leko og Nepo sín einvígi. .

Úrslit 1. umferðar.

Önnur umferð fer fram í dag og hefst kl. 14.

Mótið hefst með því að allir tefla við alla fjögurra skáka atskákeinvígi (15+10). Sigurvegari hvers einvígis fær 3 stig en verði jafnt verður tefldur bráðabani. Komi til bráðabana fær sigurvegarinn 2 stig en sá sem tapar fær 1 stig. Undankeppinni lýkur 29. júlí. jórir efstu komast í útsláttarkeppni sem fram fer 31. júlí – 5. ágúst.

Nánar um umferð gærdagsins á Chess24.

Heimasíða mótsins. 

- Auglýsing -