Brjótsmynd Friðríks Ólafssonar vakir yfir mótinu í TR og fannst skákstjórunum upplagt að setja grímu á höggmyndina til að minna keppendur um sóttvarnir.

Styrkleikamunurinn á keppendum var talsvert minni í dag en í gær og voru skákirnar því í meira jafnvægi.

Maður verður bara að dást af tækninni sem krakkarnir hafa náð við 10-12 ára aldurinn. Bjartur Þórisson sýndi það einmitt í endatafli þar sem andstæðingurinn hafði láðst að „lofta út“. Með útsmoginni hótun um mát varð andstæðingurinn að velja, að verða mát eða gefa heilan hrók. Það var því engin spurning um leikslok – Bjartur vann.

Eftir taflmennsku í tvær og hálfa klukkustund voru aðeins sjö borð eftir og fullorðnir keppendur í meirihluta. Tveir ungir strákar, þeir Gunnar Erik Guðmundsson og Ingvar Wu Skarphéðinsson, eru enn að tefla við andstæðinga sína en þeir hafa greinilega lært að nota tímann sinn vel og sitja sem fastast við skákina. Þeir hugsa og hugsa, Ingvar rær fram í gráðið og bíður spenntur eftir næsta leik Haraldar Baldurssonar. Staðan er í fullkomnu jafnvægi. Gunnar Erik situr sem límdur, en hann á erfiðan andstæðing, kvennastórmeistarann Lenku Ptáčníková. Gunnar Erik sækir fram á kóngsvæng en Lenka nýtir sér opna línu til að öðlast mótspil – allt eftir bókinni. Tilfinning pistlahöfundar er að stórmeistarinn sé að opna c-línuna til að ná stórsókn – en hver veit. Þeir Ingvar og Haraldur eru að semja jafntefli rétt í þessu.

Á efsta borðinu var Oliver Bewersdorff að rúlla c-peðinu sínu alveg upp í borð og Sigurjón Haraldsson kastar inn handklæðinu!

Eftir þrjár klukkustundir er farið að fækka í salnum – aðeins fimm borð eftir og miðaldra menn og konur berjast við unga stráka! Er það reynslan og úthaldið eða útsjónarsemi og bjartsýni sem mun ráða úrslitum? Gunnar Erik hefur náð að skipta upp á báðum hrókunum – kannski hefur hann jafnað taflið og rúmlega það.

Á þriðja borði er eldri Mai-bróðurinn Aron Þór að tefla við lækni mótsins Ólaf Gísla Jónsson. Aron Þór sækir fram á kóngsvæng en Ólafur Gísli hefur náð ákveðnu mótspili.

Á fjórða borði situr Kristján Örn Elíasson andspænis Pétri Pálma Haraðarsyni. Þeir eru komnir í drottningaendatafl og enginn getur spáð fyrir um úrslitin.

Á fimmta borði hefur verið þung stöðubarátta hjá þeim Alexander Mai og Elvari Má Sigurðssyni en hvítur er skiptamun yfir og peði undir og með verra peðastöðu. Það er erfiðara að tefla hvíta stöðuna og ómögulegt að giska á hvernig þessari skák lýkur.

Á sjöunda borði er Jóhann Hjörtur Ragnarsson að reyna að svínbeygja Hörð Jónasson og nær því sennilega með lúmskum uppskiptaleik. Aðeins tímaspursmál hvernær Hörður kastar inn handklæðinu!

Eftir u.þ.b. fjórar klukkustundir við skákborðið er spennan farin að magnast. Lenka sækir fram, Gunnar Erik nýtir ekki tækifærið til að ná sér í frípeð á a eða b-línunni með því að leika a4 en hann er líklega að hugsa of stíft um að verjast. Klukkurnar tifa og keppendurnir eru farnir að þurrka svitann og spritta sig. Lenka reynir að sækja a-peðið. Gunnar Erik nær máthótun – er þetta „terror balance“? Nei – kannski ekki, Lenka hirðir eitt peð og Gunnar Erik á nú bara 30 sekundur til að leika. Lenka nær að setja upp mátgildru sem Gunnar Erik fellur í – Yppon hjá Lenku!

Aron Þór er kominn með tvö frípeð á kóngsvæng og úrslitin ráðin – Ólafur Gísli leikur sig í mát.

Kristján Örn og Pétur Pálmi semja loks jafntefli eftir mikla stöðubaráttu og báðir ganga þeir sáttir frá skákinni.

Alexander er i vandræðum – hann hefur gefið tilbaka skiptamun og nú er hann með slæma kóngsstöðu. Er Elvar að vinna – hann er tvö peð yfir ?

Hörður er að verjast vel en hann fékk tvö peð fyrir biskupinn. Getur hann risið upp frá dauðum og náð jafntefli? Nei, Jóhann kemur í veg fyrir þá hugmynd!

Klukkan er farin að ganga átta en umferðin hófst kl. þrjú í dag. Síðasta skák dagsins er á milli þeirra Alexanders og Elvars og tefla þeir á fimmta borði. Alexander hefur snúið skákinni sér í vil. Hann nær að opna línu inn í svörtu kóngsstöðuna og hann hefur líka lagt undir sig h-línuna. Elvar á engar varnir og gefst upp!

- Auglýsing -