Frá æskulýðsstarfi Breiðabliks.

Nú er æfingataflan fyrir veturinn 2020-2021 aðgengileg á heimasíðunni https://breidablik.is/skak/aefingatafla-skak/
Skráning er hafin í gegnum Nóra og hefjast æfingar mánudaginn 7. september.

Skákdeildin hefur verið á mikilli uppleið síðastliðið ár, iðkendum fjölgaði um 60% síðastliðinn vetur og eru nú orðnir um 55 talsins.

Æfingar fara fram í Glersalnum við Kópavogsvöll.

Hér að neðan má sjá flokkaskiptinguna og verð fyrir heilan vetur (þrjár æfingar á viku).

  • 1 bekkur og yngri 35.000 kr. Þjálfari: Lenka
  • 2.-3. bekkur 40.000 kr. Þjálfari: Arnar Ingi Njarðarson
  • 4. bekkur og eldri 50.000 kr. Þjálfari Björn Ívar Karlsson (sér einnig um afreksþjálfun).
  • Framhaldshópur 60.000 kr. Þjálfari: Birkir Karl Sigurðsson

Hlakka til að sjá sem flesta í vetur,

Kristófer Gautason
Formaður Skákdeildar Breiðabliks

- Auglýsing -