Í gær fóru fram 2. og 3. umferð á alþjóðlega unglingamótinu í Uppsölum. Báðir íslensku keppendurnir unnu aðra skákina en töpuðu hinni. Vignir Vatnar Stefánsson (2313) vann Tékkann Jachym Nemec (2246) en tapaði fyrir landa hans Jakup Kusa (2233). Hilmir Freyr Heimisson (2352) mætti tveimur slóvenskum stúlkum í gær. Hann vann Pia Maria Puzic (1929) en tapaði fyrir löndu hennar Zala Urh (2195) sem er alþjóðlegur meistari kvenna. Vignir hefur 2 vinning en Hilmir hefur 1,5 vinning.
Fjórða umferð fer fram í dag og hefst kl. 11. Vignir teflir við hana þýsku Annamarie Muetsch (2266) sem er alþjólegur meistari kvenna og Hilmir við hinn sænska Edvin Trost (2202)
Bein lýsing Fionu Steil-Antoni og Nils Grandelius hefst um kl. 13 og er hægt að fylgjast með henni á Twitch-síðu Fionu.















