Skákþing Akureyrar hófst í gær. Keppendur eru 18 og tefla í tveimur flokkum. Úrslit í A-flokki:
Sigurður Eiríksson-Rúnar Sigurpálsson 0-1
Karl Egill Steingrímsson-Hjörleifur Halldórsson 1/2
Andri Freyr Björgvinsson-Stefán G. Jónsson 1-0
Gunnlaugur Þorgeirsson-Eymundur Eymundsson frestað.
Sigurvegari í A-flokki verður Skákmeistari Akureyrar árið 2021. Fráfarandi meistari er Andri Freyr Björgvinsson, en stigahæsti keppandinn að þessu sinni er Rúnar Sigurpálsson, Akureyrarmeistari árið 2019.
Keppendur í B-flokki eru allir á grunnskólaaldri og tefla um tvo meistaratitla, í unglingaflokki (f. 2005-2009) og í barnaflokki (f. 2010 og síðar).
Úrslit fyrstu umferðar í B-flokki (fæðingarár í sviga)
Tobias Matharel(2009)-Brimir Skírnisson(2009) 1-0
Markús Orri Óskarsson(2009)-Mikael Máni Jónsson(2007) 1-0
Gunnar Logi Guðrúnarson(2009)-Sigþór Árni Sigurgeirsson(2011) 0-1
Emil Andri Davíðsson(2009)-Alexía Lív Hilmisdóttir(2011) 1-0
Jökull Máni Kárason(2010)-Jóhann Valur Björnsson(2008) 1-0
Í báðum flokkum tefla allir-við-alla, sjö umferðir í A-flokki og níu í B-flokki.
Sjá má úrslit og röðun í öllum umferðum á Chess-results.com:
Önnur umferð verður tefld fimmtudaginn 4. febrúar og hefst kl. 18.00.
Af heimasíðu SA.
















