Mynd: Jurriaan Hoefsmit/Tata Steel Chess

Jorden Van Foreest (2671) vann Tata Steel-mótið sem lauk í Wijk aan Zee í gær. Jorden og Anish Giri (2764) komu jafnir í mark. Jorden vann svo landa sinn eftir ótrúlega spennandi bráðabana. Enn á ný mistekst Anish að vinna sigur í Wijk aan Zee. Fyrsti sigur Hollendings á mótinu í 36 ára eða síðan Jan Timman vann mótið 1986! Sigur Jordens er ekki síst merkilegur í því ljósi að hann var meðal stigalægstu keppenda mótsins.

Andrey Esipenko (2677), Fabiano Caruana (2823) og Alireza Firouzja (2749) urðu í 3.-5. sæti. Allir munu muna nafn Esipenko eftir mótið! Magnús Carlsen (2862) náði sjötta sæti eftir að hafa lagt MVL (2784), sem var gjörsamlega heillum horfinn á motinu, að velli í lokaumferðinni.

Nánar á Chess.com.

 

Mótstaflan

 

- Auglýsing -