Aðalfundur Taflfélags Vm. verður haldinn miðvikudaginn 3. febrúar 2021 kl. 17.30 í skákheimili TV að Heiðarvegi 9 Vm.
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar TV yfir liðið starfsár.
- Ársreikningar Taflfélags Vm. fyrir tímabilið 1. sept. 2019 til 31. des. 2020.
- Fjárhagsáætlun TV tekjur og útgjöld árið 2021.
- Kosning formanns stjórnar og fimm meðstjórnenda
- Kosning skoðunarmanns ársreiknings TV .
Skákþing Vestmannaeyja 2021
Ákveðið hefur verið að Skákþing Vestmannaeyja 2021 hefjist fimmtudaginn 4. febrúar nk. kl. 19.30 í skákheimili TV.
Teflt verður í einum flokki – Umhugsunartími 90 mín. á skákina á hvorn keppanda auk 30 sek. á leik. Ef þáttaka verður mjög góð er hugsanlegt að teflt verði í tveimur styrkleikaflokkum.
Miðað er við að teflt verði á fimmtudögum kl. 19.30 og sunnudögum kl. 13.00 verði frestaðar skákir og þegar tefldar verða tvær umferðir á viku.
Skráning á mótið fer fram á netinu á netfangið samfrost@eyjar.is , á aðalfundi TV og þegar mótið hefst fimmtudaginn 4. febrúar nk.
Skákþing Vm. 2021 verður einnig kynnt á facebook síðu TV – Taflfélag Vestmannaeyja og í netmiðlum.
Fh. stjórnar Taflfélags Vm.
Arnar Sigurmundsson, form.
Hallgrímur Steinsson, varaform.


















