Vignir og Hjörvar að tafli.

FIDE meistarinn, Vignir Vatnar Stefánsson (2314) og aljóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson (2488) eru efstir og jafnir með 6 vinninga að lokinni sjöundu umferð Skákþings Reykjavíkur sem fram fór í gær.

Helstu úrslit 7. umferðar

Vignir Vatnar vann stórmeistarann Hjörvar Stein Grétarsson (2576) í æsipennandi skák en Guðmundur hafði sigur á Gauti Páli Jónssyni (2081).

 

Röð efstu manna

Arnar Milutin vann Mikael Jóhann með kraftmikilli taflmennsku. Mynd: RS

Vignir og Guðmundur eru efstir eins og áður hefur komið fram. Hjörvar er í 3.-5. sæti ásamt Arnari Milutin Heiðarssyni (1911) og Pétri Pálma Harðarsyni (2086). Arnar vann sóknarsigur á Mikael Jóhanni Karlssyni í aðeins 20 leikjum og Pétur lagði Lenku Ptácníková (2130) með afar smekklegri hróksfórn.

Helstu viðureignir áttundu og næstsíðustu umferðar

Séð yfir skáksalinn. Mynd: RS

Guðmundur og Vignir mætast ekki í áttundu og næstsíðustu umferð. Ástæðan er sú að þeir hafa báðir haft hvítt tvær skákir í röð og ekki er leyfilegt að hafa sama litin þrisvar í röð í svissneska kerfinu.

Guðmundur teflir við Pétur Pálma en Vignir teflir við félaga sinn úr Breiðabliki, Arnar Milutin. Hjörvar mætir Jóhönnu Björg.

- Auglýsing -