Í gær barst frétt þess efnis að áskorendamótið í skák haldi áfram eftir 389 hlé í Katrínarborg í Rússlandi þann 19. apríl nk. Mótinu var hætt skyndilega þegar 7 umferðum af 14 var lokið. Lesa má meira um þá atburðarrás í grein í Þjóðmálum.
Reynt er að halda síðari hlutann í nóvember sl. Sú tilraun fór út um þúfur vegna þess að Kínverjarnir Wang Hao og Ding Liren fengu ekki ferðaleyfi frá Kína auk þess sem faraldurinn var þá víða í miklum vexti. Nú mun vera búið að tryggja það að Kínverjarnir sem og aðrir keppendur komist til Katrínarborgar.
Maxime Vachier-Lagrave og Ian Nepomiachtchi eru efstir og jafnir með 4½ vinning í hálfleik. Sex keppendur hafa 3½ vinning svo ljóst er að mikið getur gengið í síðari hálfleiknum.
| Röð | Skákmaður | Vinn. | |
| 1 | Maxime Vachier-Lagrave | 4½ | 2767 |
| 2 | Ian Nepomniachtchi | 4½ | 2774 |
| 3 | Fabiano Caruana | 3½ | 2842 |
| 4 | Anish Giri | 3½ | 2763 |
| 5 | Wang Hao | 3½ | 2762 |
| 6 | Alexander Grischuk | 3½ | 2777 |
| 7 | Liren Ding | 2½ | 2805 |
| 8 | Kirill Alekseenko | 2½ | 2698 |
Sigurvegarinn mætir Magnúsi Carlsen í heimsmeistaraeinvígi sem fram fer í Dubai nóvember-desember nk.
Nánar á heimasíðu FIDE.
















