Taflfélag Vestmannaeyja hefur ákveðið að halda atskákmót í Eyjum laugardaginn 5. júní nk. Mótið er jafnframt til minningar um Pál Árnason, múrara (1945-2021) sem var traustur félagi í TV í um langt árabil. Þrátt fyrir erfið og langvarandi veikindi tók Páll þátt í Skákþingi Vm. 2018, 2019 og 2020. Á árinu 2021 verða liðin 95 ár frá stofnun Taflfélags Vm.
Atskákmótið í Eyjum hefst kl. 12.00 á hádegi og verða tefldar 7 umferðir í opnum flokki 15 mín. á skák + 5 sek á leik. Eftir fjórar umferðir verður tekið 20 mín. kaffihlé og síðan taka við þrjár umferðir. Vanur skákstjóri annast mótsstjórn. Reiknað er með að atskákmótinu ljúki fyrir kl. 18.00 síðdegis og þá verða kynnt úrslit kynnt og veitt verðlaun. Fyrstu verðlaun verða 100 þús. kr., önnur verðlaun kr. 50 þús. kr. og þriðju verðlaun 25 þús. kr. Einnig verða veitt sérstök verðlaun fyrir þrjá efstu 16 ára og yngri. Ekkert mótsgjald og kaffiveitingar í boði TV og styrktaraðila mótsins. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga.
Herjólfur mun sigla sjö ferðir á dag í sumaráætlun milli Landeyjahafnar og Eyja. Fyrir þá keppendur ofan af landi sem ætla dvelja mótsdaginn í Eyjum er td. hægt að fara kl. 10.45 í 35 mín. siglingu frá Landeyjahöfn til Eyja. ( mæting 30 mín. fyrir brottför) til að mæta tímanlega í mótið. Akstur frá höfuðborgarsvæðinu til Landeyjahafnar tekur tæpar 2 klst. Mótslit verða sem fyrr segir um kl. 18.00 síðdegis. Herjólfur fer frá Eyjum í síðustu tvær ferðirnar kl. 19:30 og 22:00 (mæting 30. mín. fyrir brottför). Að sjálfsögðu er hægt að dvelja lengur í Eyjum, margt áhugavert að skoða, nægt gistirými og fjölbreyttir veitingastaðir. Þær sóttvarnareglur sem verða í gildi á mótsdaginn verða virtar í hvívetna.
Stjórn Taflfélags Vestmannaeyja.















