Frá Facebooksíðu Máls og Menningar

Menningarfélagið Miðbæjarskák mun halda Skákmót Máls og Menningar laugardaginn 3. júlí næstkomandi klukkan 14. Tefldar verða níu umferðir með tímamörkunum 3+2. Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Eftir fimm umferðir verður gert neysluhlé þar sem mönnum býðst að væta kverkarnar fyrir lokaátökin. Ekkert þáttökugjald er í mótið.  Skráning miðar við 30 manns og lýkur henni er þeim fjölda er náð.

Mótið er hið fyrsta sem Miðbæjarskák heldur í miðbæ Reykjavíkur eftir að Covid heimsfaraldurinn hélt skákmótahaldi í heljargreipum.

Miðbæjarskák þakkar Mál og Menningu kærlega fyrir samstarfið, en þar eru nú nýir rekstraraðilar með tónleika nánast upp á hvert einasta kvöld. Glæsilegar aðstæður eru fyrir taflmennsku, algjörlega í anda þess sem Miðbæjarskák hefur boðið upp á undanfarin þrjú ár.

Skráningu er lokið í mótið.

Þegar skráðir keppendur 

- Auglýsing -