Vignir gerði jafntefli við stórmeistarann Miroslav Markovic í gær. Mynd: SMP

Alþjóðlegi meistarinn, Vignir Vatnar Stefánsson (2359), teflir á sínu öðru alþjóðlegu móti í Arandjelovac í Serbíu.

Í sjöttu umferð, sem fram fór í gær gerði hann jafntefli við serbneska stórmeistarann Miroslav Markovic (2353). Vignir hefur 3 vinninga og er í 2.-5. sæti.

Tvær umferðir fara fram í dag. Þá teflir Vignir við tvo stigahæstu keppendur mótsins. Í þeirri fyrri teflir hann við serbneska stórmeistarann Branko Damljanovic (2501) og í þeirri síðari við bandaríska alþjóðlega meistarann Raven Stuart (2500)

Vignir teflir í þremur 10 manna lokuðum flokkum í Serbíu. Meðalstigin í öðru mótinu, sem nú er í gangi, eru 2425 skákstig. Vignir er næststigalægstur keppenda.

Czech Open er gangi í Pardubice í Tékklandi. Stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson (2517) og Guðmundur Kjartansson (2496) eru meðal keppenda.

Fimmta umferð fór fram í gær. Hannes gerði jafntefli við gríska stórmeistarann Antonios Pavlidis (2536). Hannes hefur 4 vinninga og er í 3.-11. sæti. Guðmundur tapaði og hefur 2 vinninga.

149 keppendur taka þátt í efsta flokki Czech Open og þar af eru 15 stórmeistarar. Hannes er áttundi í stigaröð keppenda en Guðmundur sá ellefti.

FIDE-meistarinn Hilmir Freyr Heimisson (2317) tekur þátt í alþjóðlegu móti í Árósum í Danmörku.

Í annarri umferð vann Svíann William Olsson (2257). Hann hefur fullt hús. Tvær umferðir eru tefldar í dag.

Átján keppendur taka þátt í mótinu og þar á meðal fjórir alþjóðlegir meistarar. Hilmir er fimmti í stigaröð keppenda.

Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2516) tekur þátt í Þýskalandsmóti öldunga (50+) sem fram fer í 23.-31. júlí í Magdeburg.

Henrik er efstur með 4½ vinning að loknum 5 umferðum.

68 keppendur taka þátt. Henrik er langstigahæstur keppenda.

- Auglýsing -