Kristján Dagur Jónsson (1706) vann sína þriðju skák í röð í opna flokknum í Uppsölum. Kristján lagði Vidar Grahn (1866) og stendur best Íslendingana í opna flokknum.

Kristján Dagur í skákinni í dag.

Önnur úrslit í opnum flokki urðu á þá leið að Hörður Aron Hauksson (1843) tapaði fyrir Anil Surender (2001) sem þar með náði plús skori á systkinin. Ens og bent hefur verið á, þá er Anil ekki mikið fyrir að gefa sig!

Liss tapaði sinni skák í dag, Hrund í bakgrunninum.

Tinna Kristín Finnbogadóttir (1821) tapaði fyrir sænska skákmanninum Oscar Jönsson (1990). Andreas Moborn (2019) lagði Jóhann Arnar Finnsson (1818).

Jóhann hefur byrjað vel en laut í dúk í dag.

Gabriel Borgström (1696) lagði Lisseth Acevdeo Mendez (1825), Hrund Hauksdóttir (1823) tapaði fyrir Victor Lilliehöök (1476) og loks komst Jón Úlfur Hafþórsson (0) á blað með jafntefli við Viktor Ring (0). Vel gert hjá honum!

Heilt yfir ekki besti dagurinn en Íslendingarnir eru að standa sig vel engu að síður!

IM-flokkur I 

Hilmir Freyr Heimisson (2309) gerði jafntefli í sinni skák í dag og er fjarri sínu besta á þessu móti. Hann þarf bara að klára mótið með stæl og muna að það er ástæða fyrir því að hann hefur hæst náð skákstigum nálægt 2400! Skákin í dag var stutt gegn Theodor Kenneskog (2278).

IM-flokkur II

Í hinum IM-flokknum mættust okkar menn þeir Dagur Ragnarsson (2394) og Vignir Vatnar Stefánsson (2371). Úrslitin komu ef til vill fáum á óvart 😉

Einföld umferð verður í opna flokknum á morgun en IM flokkarnir tefla tvöfalt.

- Auglýsing -