Þeir félagar Kristján Dagur Jónsson og Vignir Vatnar Stefánsson voru að öðrum ólöstuðum stjörnur íslensku útrásarvíkinganna á skákhátíðinni í Uppsölum í Svíþjóð. Kristján Dagur endaði í 5. sætí opnum flokki með 5 vinninga af 7 og Vignir var „grjótsolid“ í lokuðum IM-flokki og endaði í 2. sæti með 7 vinninga af 9, glæsilegur árangur hjá þeim báðum.

Tökum smá uppgjör á árangri íslensku keppendanna.

Opinn flokkur:

Hörður Aron (hægri) og Kristján (vinstri) í lokaumferðinni

Kristján Dagur Jónsson (1706) endaði mótið með stæl en því miður var þá á kostnað Harðar Arons Haukssonar (1843) en þeir mættust í Íslendingasal í lokaumferðinni.

Kristján endaði með 5 vinninga af 7 eins og áður sagði og hækkar um heil 78,8 elóstig fyrir þennan árangur! Hörður endaði með 4 vinninga eftir tapið gegn Kristjáni og hagnast um 3 elóstig í ferðinni.

Hér má sjá Tinnu og Liss í 3. umferðinni

Tinna Kristín Finnbogadóttir (1821) gerði jafntefli í lokaumferðinni gegn Almir Kicin (2161) og má einnig vel við una stigalega. Tinna endaði með 4 vinninga af 7 og græðir 26,6 stig

Liss í lokaumferðinni

Lisseth Acevdeo Mendez (1825) gerði jafntefli í lokaumferðinni gegn Per Nyberg (1581). Liss endaði með 3,5 vinning og tapaði 14,4 stigum á mótinu.

Hrund Hauksdóttir í sinni skák.

Hrund Hauksdóttir (1823) vann sigur í lokaumferðinni gegn Lennart Forslund (1802). Hrund endaði einnig með 3,5 vinning og tapaði 19,6 stigum.

Jóhann Arnar að tafli

Jóhann Arnar Finnsson (1818) klikkaði á endasprettinum og tapaði þremur síðustu skákunum eftir fína byrjun. Hann laut í dúk gegn Matija Sakic (1474) í lokaumferðinni og tapar 16,8 elóstigum.

Jón Úlfur að keppa á sínu fyrsta kappskákmóti. Hann er búsettur í Svíþjóð.

Jón Úlfur Hafþórsson (0) náði jafntefli gegn Dan Ljungstam (1104) í lokaumferðinni. Jón endaði með 2 vinninga en þarf fleiri mót til að komast inn á stigalista þar sem 7 skákir duga ekki til.

IM-flokkur I 

Hilmir Freyr að tafli í Árrósum. Mynd: Mads Boe

Hilmir Freyr Heimisson (2309) endaði mótið með tapið í mjög flókinni skák gegn Nodar Lortkipanidze (2429). Líklegast álíka flókin skák og framburður á nafni andstæðingsins!

Þessi skák og margar hjá Hilmi eru oft mjög flóknar og með mikinn æsing, mætti kannski lýsa þeim með orðinu „kamelåså“.  Ef Hilmir stýrir betur hvenær skákirnar fara í „kamelåså“ fasann eru honum allir vegir færir!

Hilmir endaði með 5 vinninga af 9 á mótinu og hækkar um 2,4 elóstig, þökk sé frábærum umferðum 6-8.

 

IM-flokkur II

Í IM-flokki II kláruðu bæði Dagur Ragnarsson (2394) og Vignir Vatnar Stefánsson (2371) mótið á sigri.

Dagur lagði FM Joakim Nilsson (2216) með svörtu.

Dagur kláraði mótið með 4,5 af 9 og tapar 17,7 stigum á mótinu.

Vignir að tafli

Vignir kláraði stigalægsta keppandann Torsten Limbach (1969) í lokaumferðinni.

Vignir endaði eins og áður sagði í öðru sæti með 7 af 9 á eftir IM Konstantin Borsuk (2415) sem hlaut 7,5 vinning. Vignir hækkar um 9,7 stig á þessu móti og kemur sannarlega reynslunni ríkari heim eftir þessi fjögur lokuðu mót, mótið nú í Uppsölum og mótin þrjú í Serbíu.

Skak.is þakkar Helga Árnasyni fyrir myndasendingar.

- Auglýsing -