Borgarskákmótið 2021 fór fram í Ráðhúsi Reykjavíkur 17. ágúst sl. Til leiks mættu 38 skákmenn sem tefldu fyrir 38 fyrirtæki og stofnanir sem styðja við bakið á félagsstarfi Taflfélagsins. Í upphafi hélt Alexandra Briem, forseti Borgarstjórnar, stutta tölu og sagði frá tengslum sínum við skákina en afi hennar var Magnús Pálsson, tvíburabróðir Sæma Rokk. Faðir hennar og bræður eru einnig liðtækir skákmenn og tefldi bróðir hennar Guðjón Heiðar í mótinu.

Alexandra Briem setur mótið og leikur fyrsta leikinn fyrir Elvar Örn Hjaltason gegn Helga Áss Grétarssyni.

Leikar fóru þannig að stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson sigraði með fullu húsi en hann tefldi fyrir Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar. Í öðru sæti varð annar stórmeistari Guðmundur Kjartansson með 6 vinn. af 7 en hann tefldi fyrir Suzuki-bíla. Fjórir skákmenn urðu jafnir í 3-6. sæti með 5 vinn. af 7 en það voru: Arnar Gunnarsson, tefldi fyrir Hreyfil, Örn Leó Jóhannsson, tefldi fyrir SJÓVÁ, Ingvar Þór Jóhannesson, tefldi fyrir Kaupfélag Skagfirðinga og Gunnar Erik Guðmundsson, sem tefldi fyrir Þorbjörn, Grindavík.

Lokastaðan var sem hér segir:

Taflfélagið þakkar öllum keppendum fyrir þátttökuna og fyrirtækjum fyrir stuðninginn.

Skákstjórar voru Ríkharður Sveinsson og Jon Olav Fivelstad.

Nánari úrslit má finna á chess-results.

Úrslit réðust einnig í Sumarmótaröðinni en vitað var fyrir mótið að Davíð Kjartansson myndi bera sigur úr býtum. Fór svo að úrslit réðust nánast í síðustu skákum þar sem oddastig annarra keppenda réðu úr um lokastöðu. Fór svo að þeir Arnar Gunnarsson og Helgi Áss Grétarsson hrifsuðu 2. og 3. sætið og munaði aðeins einu stigi á 4. sætinu! Vonandi að svona mótaraðir séu komnar til að vera og þá mætti skoða að bæta við verðlaunum í fleiri flokkum. Glæsilegt framtak!

- Auglýsing -