Eftir fjórar umferðir á Kviku Reykjavíkurskákmótinu / EM einstaklinga er aðeins einn keppandi eftir með fullt hús vinninga. Sá er armenskur og heitir Robert Hovhannisyan (2626). Robert lagði Þjóðverjann Niclas Huscenbeth (2592) og var sá eini af þeim með 3 vinninga sem náði að vinna sína skák.

Þéttur pakki af keppendum hefur 3,5 vinning, þar á meðal Tékkinn geðþekki David Navara (2675), Azerinn skæði Rauf Mamedov (2654) og Evrópumeistarinn fyrrverandi Ivan Saric (2653).

Hannes Hlífar Stefánsson (2519) er efstur Íslendinga með 3 vinninga. Hannes gerði sér lítið fyrir og lagði stigahæsta keppanda mótsins, Gawain Jones (2684), sannfærandi að velli. Jones taldi þetta með verri skákum sem hann hefur teflt upp á síðkastið og gleymdi nánast teoríu í 8. leik. Hannes lét ekki bjóða sér slíkt færi tvisvar.

Nokkrir Íslendingar hafa 2,5 vinning. Hjörvar Steinn (2603) tapaði grátlega í dag. Tefldi flott skák gegn Gabor Nagy (2519).
Hér lék Hjörvar 34…Hxe3?? sem er tapleikur. 34…Hg4! endar nánast þvingað með máti í nokkrum leikjum. Eftir 35.fxe3 er staðan enn flókin eftir 35…Df5 en Hjörvar lék 35…f2? og eftir 36.Kg2 De2 átti Nagy stóra björgun í stöðunni.
37.Hh8+!! snýr taflinu algjörlega við. Svekkjandi tap hjá okkar stigahæsta manni.

Aðrir með 2,5 vinning eru Vignir Vatnar (2371) sem gerði traust jafntefli í dag við 2500 stiga mann. Helgi Áss Grétarsson (2447) gerði jafntefli við Mateusz Bartel (2611) þar sem sénsarnir lágu lengi vel hjá Helga. Stórmeistarnir Bragi Þorfinnsson og Guðmundur Kjartansson kláruðu sína skyldusigra og hafa einnig 2,5 vinning.
Útsending umferðarinnar. Sokolov með Þresti. Gunnar Björnsson leit við í viðtal.




Öll úrslit má svo nálgast á Chess-results
Skákir mótsins PGN (fyrstu 3 umferðir)

















