Skákfélag Selfoss og nágrennis tapaði með minnsta muni gegn dönsku sveitinni Xtracon í gær í Struga í Makedóníu. Taflfélag Reykjavík lá fyrir ísraelsku sveit og Víkingaklúbburinn gerði jafntefli við sveit frá Kósóvó. SSON er í 9. sæti með 8 stig, TR í 20 sæti með 6 stig og Víkingaklúbburinn 25. sæti með 5 stig.

SSON tapaði með minnsta muni fyrir dönsku sveitinni Team XtraCon sem kemur frá Köge. Mikhail Antipov var sá eini sem vann. Róbert Lagerman gerði jafntefli gegn stórmeistaranum Boris Chatalbashev (2530). Hans þriðja jafntefli gegn stórmeistara á mótinu.


TR steinlág, 1-5, fyrir ísraelsku sveitinni Beer Sheva. Sveitin mun ekki vera styrkt af bjórframleiðenda heldur tengist nafnið héraði í Ísreal hvaðan sveitin er frá. Guðmundur Kjartansson og Gauti Páll Jónsson gerðu jafntefli. Gauti við stórmeistarann Nitzan Steinberg (2537). Hans sjötta jafntefli gegn stórmeistara.


Víkingaklúbburinn gerði 3-3 jafntefli við Dardania frá Kósóvó. Davíð Kjartansson og, lánsmaðurinn, Símon Þórhallsson unnu sínar skákir.

Sjöunda og síðasta umferð hefst kl. 13 í dag. SSON og TR verða í beinni. SSON mætir heimamönnum í sveitinni Prilep.

TR teflir við slóvensku sveitina Maribor Poligram. Á þriðja borði mætast félagarnir Margeir Pétursson og Adrian Mikhalchishin.

Víkingar tefla við enska klúbbinn Sussex Martlets.
















