Sigur í höfn Vignir Vatnar vann yfirburðasigur á Skákþingi Reykjavíkur. — Ljósmynd/Ómar Óskarsson

Alþjóðlegi meistarinn, Vignir Vatnar Stefánsson (2399) vann alþjóðlega unglingamótið í Uppsölum sem fram fór 29. október – 3. nóvember sl. Vignir og íranski stórmeistarinn Aryan Gholamiorimi (2510) komu jafnir í mark en Vignir hafði betur eftir stigaútreikning. Þeir fengu sjö vinninga í umferðunum níu.

Tvö umferðir fóru fram í gær. Í fyrri umferðinni vann Vignir hollenska FIDE-meistarann Siem Van Dael (2385) en gerði svo jafntefli við Gholamiorimi í lokaumferðinni.

Hilmir Freyr Heimisson (2285) endaði í 4.-7. sæti með 6 vinninga. Í gær vann hann annars vegar Norðmanninn Alexander Oye-Stromberg (2111). Í síðari umferðinni gerði hann jafntefli við sænska FIDE-meistarann Hampus Sörensen (2377).

Alexander Oliver Mai (2062) endaði mótið einnig vel og vann tvær síðustu skákirnar.  Hann endaði í 25.-29. sæti með 4 vinninga.

Frammistaða Vignis samsvaraði 2554 og hækkaði hann um 15 stig fyrir hana. Frammistaða Hilmis samsvaraði 2341 skákstigum og hækkar hann um 31 stig fyrir hana. Alex lækkar um 4 stig fyrir sína frammistöðu.

Vignir heldur nú til Stokkhólms þar sem hann teflir á Hasselbacken-mótinu ásamt 19 öðrum ungmennum úr Skákdeild Breiðabliks.

Alls tóku 38 skákmenn þátt í mótinu. Vignir var fjórði í stigaröð keppenda, Hilmir var nr. 19 og Alex nr. 28.

- Auglýsing -