Frá skák dagsins. Mynd: Heimasíða FIDE.

Lítil breyting í Dubai. Enn er jafntefli. Í fimmtu skák Ian Nepomniachtchi (2782) og Magnúsar Carlsen (2855) var sem fyrr tefldur spænskur leikur þegar þegar Nepo hefur hvítt.  Heimsmeistarinn breytti af þessu fyrr út af þegar hann lék 8…Hb8 í stað 8…Bb7.

Rússinn fékk smá frumkvæði en aldrei nægjanlegt til að geta almennilega saumað að Norðmanninum. Svo fór að jafntefli var samið eftir 43 leiki.

Sjá nánar frétt á Chess.com.

Frídagur er á morgun.  Sjötta einvígisskákin verður tefld á föstudaginn.

 

- Auglýsing -