Skemmtikvöld Vinaskákfélagsins verður haldið með glæsibrag á Kex Hostel laugardaginn 4 desember kl. 14:00.
Þetta er einstakt tækifæri til að sjá einvígi þeirra Carlsen gegn Ian Nepo á stóru tjaldi. Á laugardaginn verður 7 einvígisskákin sýnd. Við munum nota streymi frá Chess24. Þeir sem verða með leiðbeiningar eru Anish Giri og Judit Polgar, þannig að þetta er eitthvað til að hlakka til að koma og sjá.
Við verðum með nokkur töfl svo skákmenn geta tekið í skák á meðan við fylgjumst með einvíginu.
Frítt inn!! Allir velkomnir!
Þetta er gott tækifæri fyrir skákmenn til koma saman og hittast.
Boðið verður upp á bjór (cirka 2 bjórar á mann) fyrir alla bæði meðlimi og gesti.
Pizzur verða í boði fyrir þá meðlimi sem tefldu á Íslandsmóti skákfélaga núna í október.
Á staðnum geta skákmenn keypt kaffi og pizzur á góðu verði.
kv. Hörður Jónasson Varaforseti Vinaskákfélagsins















