Frá skákinni í gær. Mynd: Heimasíða FIDE.

Magnús Carlsen (2855) og Ian Nepomniachtchi (2782) gerðu jafntefli í tíundu skák heimsmeistaraeinvígis þeirra í gær. Staðan er núna 6½-3½ heimsmeistaranum í vil. Hann þarf aðeins einn vinning við viðbótar í fjórum síðustu skákunum til að tryggja sér heimsmeistaratitilinn.

MC hafði hvítt og beitti Rússinn rússneskri vörn. Sá norski beitti 3. Rd3 rétt eins og hann gerði gegn Caruana árið 2018. Fljótt skiptist upp á drottningum. Magnús fékk reyndar tækifæri til ná fram smá frumkvæði í áttunda leik sem hann lét framhjá sér fara, enda sáttur við jafntefli. Staðan varð flöt og litlaust og jafntefli samið eftir 41 leik.

Hér er skákin í heild sinni með skákyringum Sam Shankland.

Ellefta skákin fer fram fram á morgun. Þá hefur Nepo hvítt og þarf nauðsynlega að vinna. Ef MC vinnur þá lýkur einvíginu.

 

- Auglýsing -