Ellefta skák heimsmeistaraeinvígisins hefst kl. 12:30. Ian Nepomniatchi hefur hvítt og verður að vinna ætli hann að eiga möguleik. Staðan er núna 6½-3½ og heimsmeistarinn þarf aðeins 1 vinning í síðustu fjórum skákunum til að halda heimsmeistaratitlinum.
Það eru margar leiðir til fylgjast með einvíginu í beinni.
Útsendingar á heimasíðu mótsins eru í umsjón Viswanathan Anand og Anna Muzychuk auk Maurice Ashley.
Vert er einnig að benda á beinar útsendingar á Chess24 sem eru í umsjón Judit Polgar, Anish Giri og Tania Sadchev.

Tengill á útsendingar á Chess24
Chess.com er að sjálfsögðu einnig með beinar útsendingar. Þar ráða ríkjum Fabiano Caruana, Hou Yifan, Robert Hess og Danny Rensch.

Tengill á útsendingar á Chess.com
Chess24 er einnig aðrar beinar útsendingar sem eru mjög aðgengilegar og eru í umsjón David Howell, Jovanka Houska og Kaja Snare.

Tengill á útsendingar Howell, Houska og Snare
Svo eru það Peter Svidler og Vladimir Kramnik sem eru í uppáhaldi hjá mörgum!
















