Rúnar að tafli á Akureyri. Mynd: Heimasíða SA.

Atskákmóti Akureyrar lauk nú um helgina. Fjórtán keppendur tóku þátt í mótinu og voru tefldar sjö umferðir skv. svissnesku kerfi. Sigurvegari varð afmælisbarn dagsins, Rúnar Sigurpálsson, en hann mun síðast hafa unnið þetta mót fyrir 27 árum. Hann vann sex skákir og gerði eitt jafntefli.

Lokastaðan að öðru leyti:

Andri Freyr Björgvinsson 5,5

Smári Ólafsson           5

Sigurður Eiríksson, Stefán G. Jónsson og Karl Steingrímsson 4

Tobias Matharel, Markús Orri Óskarsson, Arnar Smári Signýjarsons og Áskell Örn Kárason 3 (Áskell tefldi aðeins fjórar skákir).

Jökull Máni Kárason     2

Eliott Vaucher, Sævar Max Árnason og Brimir Skírnisson  1  (Sævar og Brimir tefldu aðeins þrjár skákir hvor).

Öll úrslit má finna á chess-results

Af heimasíðu SA

- Auglýsing -