Ungmennameistaramót Íslands (u22) – Meistaramót Skákskóla Íslands hófst í gær með tveimur atskákum. Mótið er óvenjulega fjölmennt og vel skipað að þessu sinni.
Benedikt Briem (2073), Ingvar Wu Skarphéðinsson (1679), Björn Hólm Birkisson (2070), Birkir Ísak Jóhannsson (2088) og Símon Þórhallsson (2275) eru efstir og jafnir.
Töluvert var um óvænt úrslit. Ingvar Wu gerði sér lítið fyrir að vann Hilmi Frey Heimisson (2322) í fyrstu umferðinni. Sverrir Hákonarson (1543) sem hefur lítið sést við skákborðið síðustu ár gerði jafntefli við Bárð Örn Birkisson (2152).
Ingvar Wu hélt áfram að gera góða hluti í 2. umferð og vann þá Alexander Oliver Mai (2060). Arnar Milutin Heiðarsson (2048) gerði jafntefli við Vignir Vatnar Stefánsson (2457).
Í dag verða tefldar 2 kappskákir og hefst sú kl. 11. Þá mætast meðal annars Benedikt-Símon, Björn Hólm-Birkir Ísak og Vignir Vatnar-Ingvar Wu.
















