Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2513) endaði í 8.-20. sæti (12. sæti á stigum) á EM í atskák sem sem fram fór um helgina í Katowice í Póllandi. Hannes hlaut 8½ vinning í umferðunum ellefu. Prýðis frammistaða hjá Íslandsmeistaranum þrettánfalda!
Helgi Áss Grétarsson (2405) hlaut 8 vinninga, Guðmundur Kjartansson (2402) fékk 7½ vinning og Gauti Páll Jónsson (2024) endaði með 6½ vinning.
Reyndar hefur farið tvennum sögum af erindi Gauta til Póllands en hið sanna virðist þá hafa komið í ljós miðað við lokastöðu mótsins.
Á leið til Póllands að hitta konu sem ég kynntist á netinu. Er búinn að segjast vera á leið á skákmót en það er lygi. Hef hjálpað henni mikið fjárhagslega (þurfti að leysa út arf og það gekk eitthvað illa) en nú fáum við loksins að hittast í persónu
— Gauti Páll (@JonssonGP) December 16, 2021
Evrópumeistari varð rússneski stórmeistarinn Alexander Motylev (2703).
European Rapid Chess Championship 2021 has just concluded!
After 11 played rounds 3 players tied for the top scoring 9.5 points each. Tiebreaks criteria decided the Champion and the medalists:
🏆Motylev Alexander🇷🇺
🥈Donchenko Alexander🇩🇪
🥉Pultinevicius Paulius🇱🇹Congrats!👏 pic.twitter.com/EEJdGAP8cU
— European Chess Union (@ECUonline) December 19, 2021
















