Reykjavíkurleikarnir (Reykjavik International Games) fara fram 29. og 30. janúar nk.
Skák verður að þessu sinni í fyrsta skipti hluti af Reykjavíkurleikunum og fagnar skákhreyfingin því mjög! Teflt verður í Laugardalshöllinni.
Hápunktur verður fjögurra landa keppni sem fram fer sunnudaginn 30. janúar. Þar taka þátt margir af fremstu skákmönnum Norðurlandanna. Keppnin fer fram á RÚV, á milli 13 og 16, og verður í beinni útsendingu í umsjón Ingvars Þórs Jóhannessonar og Jóhönnu Bjargar Jóhannsdóttur.
Danir, Norðmenn og Svíar taka þátt í landskeppninni, auk Íslendinga. Liðin skipa eftirtaldir skákmenn sem allt eru þrautreyndir landsliðmenn sinna landa.
Ísland:

Hjörvar Steinn Grétarsson (2548)

Lenka Ptácníková (2173)
Danmörk

Mads Andersen (2570)

Ellen Fredericia Nilssen (2110)
Noregur

Lars Oskar Hauge (2513)

Monika Machlik (2134)
Svíþjóð
Erik Blomqvist (2536)

Viktoria Johansson (2041)

Tefldar eru atskákir (10+5) eftir útsláttarfyrirkomulagi. Verði jafnt (2-2) verður tefld bráðabanaskák. Dregið verður um hvort bráðabanaskákin fari fram á karla- eða kvennaborðinu.
Laugardaginn 29. janúar fer fram hraðskákmót í Laugardalshöllinni. Um er að ræða hraðskákmót þar sem erlendu keppendurnir taka þátt, sem og boðsgestir. Þátttakan miðast við u.þ.b. 40 keppendur.
Nánari upplýsingar og skráningarform eru væntanleg eftir helgi.

















