Hannes að tafli á Íslandsmóti skákfélaga. Mynd: Ómar Óskarsson.

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2518) gerði jafntefli í 22 leikjum við tékkneska FIDE-meistarann Vaclav Finek (2425) í sjöttu umferð Marienbad Open í Tékklandi í gær. Hannes hefur 3½ vinning er í 2.-5. sæti.

Sjöunda umferð fer fram í dag. Hannes teflir þá við bandaríska FIDE-meistarann Kirk Ghazarian (2379).

Tíu skákmenn og þar af þrír stórmeistarar tefla í lokuðum flokki Hannesar. Hannes er næststigahæstur keppenda. Meðalstigin er 2420 skákstig.

- Auglýsing -