85. Skákþing Akureyrar hefst sunnudaginn 30. janúar kl. 13.00. Teflt verður í Skákheimilinu í Íþróttahöllinni við Skólastíg.
Keppni í barna- og unglingaflokki hefst þó strax föstudaginn 28. janúar (sjá sérstaka auglýsingu um það mót)
Fyrirkomulag mótsins mun að nokkru leyti mótast af fjölda þátttakenda, en stefnt er að því að tefla 7-9 umferðir. Sigurvegarinn mun hljóta sæmdarheitið „Skákmeistari Akureyrar 2022“. Mótið er öllum opið, bæði ungum sem gömlum.
Umhugsunartími verður 90 mínútur á skákina, auk þess sem 30 sekúndur bætast við tímann fyrir hvern leik (90+30).
Þátttökugjald er kr. 3.000 fyrir skuldlausa félagsmenn, kr. 4.000 fyrir aðra. Þátttaka er ókeypis fyrir þá unglinga sem greitt hafa æfingagjald.
Mótið verður reiknað til alþjóðlegra skákstiga.
Skráning er í netfangið askell@simnet.is eða á facebook síðu Skákfélags Akureyrar. Einnig er hægt að skrá sig á skákstað eigi síðar en 15 mínútum fyrir upphaf fyrstu umferðar.
Dagskrá í verður sem hér segir: (ath. að fjöldi umferða er óviss þar til lokaskráning liggur fyrir.)
- umferð sunnudaginn 30.janúar kl. 13.00
- umferð fimmtudaginn 3.febrúar kl. 18.00
- umferð sunnudaginn 6.febrúar kl. 13.00
- umferð fimmtudaginn 10.febrúar kl. 18.00
- umferð sunnudaginn 13.febrúar kl. 13.00
- umferð fimmtudaginn 17.febrúar kl. 18.00
- umferð sunnudaginn 20.febrúar kl. 13.00
- umferð fimmtudaginn 24.febrúar kl. 18.00 (til vara)
- umferð sunnudaginn 27.febrúar kl. 13.00 (til vara)
Þegar fjöldi keppenda liggur fyrir getur mótsstjóri gert minniháttar breytingar á dagskrá og fyrirkomulagi til að auðvelda framkvæmd mótsins. Einnig er fyrirvari um minniháttar breytingar/frestanir ef ef upp koma veikindi og/eða keppendur skyldu lenda í sóttkví.
Þátttaka í mótinu er öllum heimil en Skákmeistari Akureyrar getur aðeins sá orðið sem er búsettur á Akureyri og/eða er fullgildur félagi í Skákfélagi Akureyrar.
Núverandi Skákmeistari Akureyrar er Rúnar Sigurpálsson.
















