Eftir að hafa misst af fyrsta GM mótinu er Vignir Vatnar Stefánsson mættur til leiks í Serbíu ásamt þeim Hilmi Frey og Alexander Oliver sem tóku þátt í IM flokki sem kláraðist í gær.
Vignir Vatnar gerði jafntefli í fyrstu skák sinni gegn Indverjanum Vignesh (2370). Vignir hafði hvítt en fékk ekki nægjanlega mikið til að vinna úr og nokkuð tíðindalítið jafntefli varð raunin.
Hilmir Freyr Heimisson vann sinn flokk um daginn ásamt hinum unga og efnilega Nikolay Averin. Þær mættust í fyrstu umferðinni núna í móti tvö og náði Averin að koma fram hefndum fyrir tapið í fyrra mótinu.
Skák Hilmis

Alexander Oliver Mai var sá eini sem vann sína skák í dag og heldur áfram sínu flotta gengi!
GM Flokkur Vignis á Chess-Results
IM Flokkur Hilmis og Alexanders á Chess-Results

















