Íslandsmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2548) heldur uppteknum hætti á Skákþingi Reykjavíkur og er enn með fullt hús eftir sjö umferðir.
Sá er þurfti að lúta í dúkinn góða að þessu sinni var Arnar Milutin Heiðarsson. Hjörvar fékk stöðuyfirburði með hvítu og leiddi það til skiptamuns vinnings. Eftirleikurinn varð svo auðveldur fyrir stórmeistarann.
Davíð Kjartansson (2304) lagi FIDE meistarann Sigurbjörn Björnsson á snaggarlegan hátt og er í 2. sæti með 5,5 vinning af 7.
Lenka Ptacnikova og Benedikt Briem koma næst með 5 vinninga en þau hafa bæði unnið allar sínar fjórar tefldu skákir en þurftu að taka þrjár umferðir í hjásetu.
Áttunda umferðin fer fram föstuudaginn 18. febrúar og hefst klukkan 18:30. Lokaumferðin er svo á sunnudaginn.
- Auglýsing -

















