Nýtt mót, nýr dagur og ný tækifæri! Þremenningarnir hafa nú hafið leik á þriðja mótinu í mótaröðinni í Serbíu. Allir töpuðu þeir stigum á síðasta móti en nú byrja allir með „sléttan dúk“ og jafnt á liði!
Vignir Vatnar Stefánsson átti rólegt mót síðast en einnig traust. Vonandi er hann búinn að „tefla sig í gang“ eins og oft er sagt.
Verkefni fyrstu umferðar var erfitt, svart á stigahæsta mann mótsins, GM Nikita Petrov (2561). Nikita var ekkert að rugga bátnum og bauð jafntefli í 14. leik. Vignir valdi traust afbrigði gegn Catalan. Afbrigði sem greinarhöfundur stúderaði gegn með hvítu í 2 vikur að reyna að finna góða leik fyrir skák í norsku deildakeppninni…hvort það hafi tekist skal ósagt látið en afbrigðið er allvega traust á svart!

Hilmir Freyr Heimisson hefur vonandi jafnað sig á „áfangaþynnkunni“ í móti númer tvö. Það vill oft verða þannig að þegar menn ná markmiðum verður ákveðið spennufall og mögulega var það skýring á árangrinum í móti númer tvö. En…eins og sagt var í upphafi, nýr dagur og nýtt upphaf og Hilmir fer vel af stað. Hann lagði Indverjann Singh Amitpal (2102) með svörtu í fyrstu umferðinni.

Alexander Oliver tók „Botvinnik-leiðina“ á þetta og gerði jafntefli í sinni skák. Það er mikilvægt að komast á tap eftir tapskákahrinu og Alexander gerði það þó hann eigi líklega að vinna þennan andstæðing á eðlilegum degi.
Á morgun er tvöfaldur dagur á mótinu eins og við erum farin að þekkja. Erfitt prógram en stákarnir eru í þessu af alvöru, þetta er hvorki mömmuleikur né eitthvað „Andorra-dæmi“ …þetta er miklu harðara!
GM Flokkur Vignis á Chess-Results
IM Flokkur Hilmis og Alexanders á Chess-Results
















