Enn og aftur var tvöföld umferð á dagskrá í Serbíu. Að þessu sinni gekk öllum vel og 4,5 vinningur af 6 kom í hús sem er frábær!
Vignir Vatnar Stefánsson fer fínt af stað. Hann vann hálfgerðan skyldusigur (allavega ef hann ætlar að ná áfanga!) í fyrri skákinni gegn Jagadeesh Siddharth (2331) með hvítu. Í seinni skákinni gerði Vignir jafntefli við hinn trausta stórmeistara Dragan Kosic (2425) með svörtu.

Hilmir Freyr Heimisson vann 2100 stiga skákmann ótrúlega fljótt í uppskipta afbrigðinu í Spánverjanum í fyrri skákinni. Í þeirri seinni hafði hann svart á GM Dejan Pikula og jafntefli varð niðurstaðan.
Seinni skákirnar vantar í IM flokknum og verður bætt við þegar þær liggja fyrir.
Alexander Oliver byrjar þriðja mótið fínt eins og hann gerði á öðru mótinu, nú er bara að fylgja því eftir. Hann gerði jafntefli við Nikolay Averin (2060) í fyrri umferðinni. Averin þessi vann fyrsta mótið með Hilmi og er að fara jafnvel yfir 2400 á stigum en hann hefur verið að moka þeim inn á þessum mótum.
Í seinni skákinni lagði Alexander að velli Singh Amitpal, 2100 stiga skákmann.
Sannarlega fínn tvöfaldur dagur og vonani halda þeir áfram. Vignir þarf ennþá ansi gott skor til að ná áfanga en hann byrjar sannarlega traust og stýrir hvítu mönnunum á morgun gegn Vinay Kumar Matta (2305) í mikilvægri skák fyrir framvinduna.
GM Flokkur Vignis á Chess-Results
IM Flokkur Hilmis og Alexanders á Chess-Results
















